Stærðartafla Mount to Coast
Stærðartafla – Mount to Coast
Rétt passform á hlaupaskóm er lykilatriði fyrir bæði þægindi og árangur, sérstaklega á lengri hlaupum og ofurhlaupum. Fylgdu skrefunum hér að neðan til að mæla fæturna heima og finna rétta stærð.
Ráð áður en þú mælir
- Mældu fæturna á kvöldin þegar þeir eru orðnir sem stærstir eftir dagsins iðju.
- Ef fæturnir eru mislangir skaltu alltaf miða við lengri fótinn.
- Ef þú ert á milli tveggja stærða mælum við með að þú veljir stærri stærðina til að tryggja sem bestu þægindi.
- Mældu fæturna gjarnan einu sinni á ári þar sem fótastærð getur breyst með tímanum.
Þú þarft
- Blað sem er stærra en fóturinn
- Penna eða blýant
- Reglustiku eða málband
- Sokkana sem þú ætlar að nota með skónum
Svona mælir þú fæturna
- Leggðu blaðið á slétt gólf og stattu á því með báða fætur, í sokkunum sem þú munt nota þegar þú hleypur.
- Merktu við hælinn og tána á lengstu tánni með penna. Mældu báða fæturna þar sem þeir geta verið misstórir.
- Mældu fjarlægðina milli hælmarksins og támarksins í sentímetrum.
- Berðu málið saman við stærðartöflu Mount to Coast til að finna rétta stærð.
- Ef málið þitt lendir á milli tveggja stærða mælum við með að þú veljir stærri stærðina fyrir þægilegri passform, sérstaklega í lengri hlaupum.


