Hoka Airolite Run Long Sleeve Karla
Hoka Airolite Run Long Sleeve Karla
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um afhendingarframboð
HOKA M Airolite Run Long Sleeve
Sval og ofurlétt langerma peysa
Ómissandi í hlaupfataskápinn þinn. Þessi ofurþunna og ofurlétta langerma peysa getur komið sér vel bæði sem ysta lag og keppnisflík í aðeins svalara veðri. Hún er líka nógu svöl og loftgóð til að nota sem sólarvörn á heitum dögum. Efnið í peysunni er fljótþornandi og loftgott. Það veitir einnig UV-vörn og hefur bakteríudrepandi eiginleika sem draga úr því að lykt festist í efninu.
Sniðið er þröngt en ekki alveg aðsniðið og aukaefni hefur verið bætt undir ermarnar svo þú hafir fullt hreyfifrelsi.
Á nokkrum stöðum eru saumar límdir í stað þess að vera saumaðir, til að auka þægindi og draga úr núningi við líkamann. Framan á ermunum eru þumalop svo peysan geti haldið úlnliðunum heitum þá daga sem þess þarf.
Efni:
Endurunnið Pinhole Mesh (72% endurunnið nylon, 28% elastan)
Kostir:
- Mjög þunn, létt og andar
Endurskinsmerki bæði að framan og aftan
Meðhöndluð með DWR-himnu (vatnsfráhrindandi)
Stærð:
Hoka-fatnaður er í venjulegum stærðum. Veldu því þá stærð sem þú notar yfirleitt.
Deila
