Injinji Run Original Weight No-Show
Injinji Run Original Weight No-Show
Ekki tókst að hlaða upplýsingum um afhendingarframboð
Injinji Run Original weight No-Show
Úr rakadrægum CoolMax®, slitsterku Nylon og Lycra®. Sokkurinn er mótaður eftir fætinum og án sauma. Einstök fimm táa hönnun Injinji kemur í veg fyrir snertingu húðar milli tánna og þar með blöðrur og nuddáverka. Sokkurinn hentar vel einn og sér eða sem innsta lag undir venjulega sokka.
Mælt með fyrir: Hlaup, hjólreiðar, gönguferðir, frjálsíþróttir og fjölíþróttir.
Vörn gegn blöðrum:
Þegar hver tá er aðskilin og varin er komið í veg fyrir núning húðar við húð og þar með blöðrur og nuddáverka.
Rakastjórnun:
Hver tá er umvafin svitadrepandi efni, sem heldur fætinum þurrari og þar með þægilegri en í hefðbundnum sokkum.
Nýting alls fótarins:
Þegar tærnar eru aðskildar og geta hreyfst frjálslega virkist allur fóturinn og tærnar betur við áreynslu.
200 nála þéttleiki:
Því fleiri nálar, því betra. Sokkar með 200 nálum eru léttir, sterkir og slitþolnir.
Netofið yfirborð:
Veitir hámarks öndun og loftun ofan á fætinum.
Stuðningur við fótbogann:
Stuðningsband við fótbogann tryggir örugga og stöðuga mátun.
Verndandi dempun :
Auka bólstrun undir fætinum fyrir aukin þægindi.
Trefjainnihald:
Efni: 62% Nylon pólýamíð, 36% CoolMax®EcoMade pólýester, 2% Lycra® spandex
Deila
